|
Fróðlegt
|
Fréttir15 Febrúar 2010- Frábærar nýjungar í kerfinu Ýmsar breytingar hafa verið uppfærðar í kerfið á undanförnum mánuðum. Mikilvægasta viðbótin er þó sú að nú geta notendur Íslandsbanka, lesið inn allar færslur úr bankabók, og látið kerfið stinga upp á jöfnun milli kerfis og bankabókar. Þegar færslur hafa verið jafnaðar má láta kerfið svo stinga upp á færslum fyrir allt það sem út af stendur inn í dagbók. Að auki getur kerfið stofnað lánadrottna og viðskiptamenn beint frá innlestri úr bankabók hafi aðili í banka ekki verið stofnaður í Notando.is. Einnig geta notendur nú gert greiðsluseðla beint frá sölureikningum og stofnað þá inn í bankakerfið. Að sama skapi er hægt að lesa þá tilbaka beint inn í kerfið. Þessi viðbót mun létta gríðarlega hjá öllum þeim sem eru að bóka í Notando kerfið og setur þetta í fremstu röð kerfa fyrir bæði fyrirtæki og bókara. http://www.youtube.com/notandois Sem stendur er þessi viðbót bara fyrir Íslandsbanka en næst verður Landsbankanum bætt við og svo Byr/Sparisjóðunum og að lokum Kaupþingi. Aðrar nýungar í kerfinu eru t.d.:
Allar ofangreindar nýjungar eru innifaldar í grunnáskrift kerfisins. 12 Okt 2009 Kennsluefni á YouTube.com - Fullt af kennslmyndböndum fyrir Notando kerfið hafa nú verið sett á YouTube. Meðal annars er kennt að gera reikninga, taka á móti greiðslum, stofna vörur og fullt fleira. Endilega kíkið á http://www.youtube.com/notandois. 7 Sept 2009 - Nýir notendur verða nú með fullt af fleiri hlutum foruppsettum í kerfinu. Þar á meðal má nefna um 17 flýtifærslur til að flýta fyrir og einfalda bókfærslu. Foruppsettum frádrætti vegna Opinberra gjalda og Meðlags í launum. Þetta og ýmislegt fleira einfaldar málin fyrir notendur að nota Notando kerfið. 15 Júlí 2009 - Uppfærður launaútreikningur vegna skattbreytinga Launakerfi hefur verið uppfært til að taka til greina 8% hátekjuskatt sem settur var á frá og með Júlí. Þannig er núna bætt við 8% staðgreiðslu á öll laun umfram 700.000 kr. á mánuði. Samskonar útreikningur er framkvæmdur vegna vikulegra launa. Þessi útreiknaða staðgreiðsla skilast svo sjálfkrafa til RSK með öðrum tölum. 12 Júlí 2009 - Nú er hægt er að setja upp sendingarkostnað í vefverslun m.v. þyngdir eða stærðir. Þannig kostar pakki t.d. 200 kr. m.v ef vörur vega samtals undir 1 kg en 300 kr. ef pakkningin er milli 1 - 1,2 kg. 5 Júlí 2009 19.01.2009 Uppfærsla á kerfinu 02.04.2008 Notando bókhalds, launa og vefverslunarlausnin er tilbúin í beta útgáfu 02.05.2007 Dótturfélag stofnað í Ukraníu 01.12.2007 Gámaeftirfylgnilausn (gámalausn) er afhent Hringrás |