en | is
| | | |

Hvað er innifalið í grunnkerfi Notando.is (sjá verðtöflu neðst á síðu) ?

Auðvelda svarið er að þar er ALLT innifalið nema vefverslun og launakerfið er takmarkað við einn launamann. Að öðru leyti er allt sem upp er talið hér að neðan innifalið í grunnkerfinu:

  1. Sölureikningar og pantanir
  2. Innkaupareikningar og pantanir
  3. Vista reikninga sem form til að nota aftur og aftur
  4. Val á ýmsum formum fyrir reikninga
  5. Hægt að setja haus og fót að eigin vali á reikninga
  6. Hægt að setja söluskilmála á reikninga almennt eða per viðskiptavin
  7. Verkefni og deildir (víddir) í eins mikill dýpt og þörf krefur
  8. Fullkomið og mjög auðvelt fjárhagskerfi
  9. Flýtifærslur til að flýta fyrir dagbókarfærslum
  10. Viðskiptamannabókhald
  11. Lánadrottnabókhald
  12. Samningar fyrir þá sem gera eins reikninga eða vísitölu uppfærða reikninga
  13. Birgðakerfi
  14. Vísitöluútreikningar fyrir vöruflokka
  15. Uppskriftir á vörum
  16. Tenging við RSK til að skila staðgreiðslu/VSK og launamiðum
  17. Tenging við Íslandsbanka til að senda greiðsluseðla sjálfvirkt beint frá reikningum
  18. Innlestur greiðsluseðla og flutningur beint í dagbók
  19. Innlestur bankafærslna og uppástunga á dagbókarfærslum beint af bankareikningi
  20. Margir gjaldmiðlar
  21. Einn launamaður og allar aðgerði í launakerfi
  22. Auðveld sending reikninga sem PDF viðhengi í netpósti beint til viðskiptavina
  23. Netpóstar innihalda greiðsluslóðir á Borgun til að viðskiptavinir geti greitt beint með korti
  24. “Mælaborð” fyrir reksturinn á upphafssíðu
  25. Kennsla Youtube og frí kennsla flesta föstudaga
  26. Allar uppfærslur innifaldar
  27. Frábær aðgangsstjórnun sem gerir þér kleift að veita t.d. starfsmönnum aðgang að einni aðgerð bara á mánudögum, bara yfir sumarið
  28. Ótakmarkaðir notendur að kerfi
  29. Iphone lausn til að stofna viðskiptavini og gefa út reikninga

Það má með sanni segja að LOKSINS bjóðist minni íslenskum fyrirtækjum mjög fullkomið bókhaldskerfi á frábæru verði án óvæntra uppákoma með reikningum. Margir söluaðilar þora ekki að segja verðin á heimasíðu, aðrir segja þau en sleppa að nefna að þjónustusamningur er NAUÐSYNLEGUR ef þú vilt að kerfið fá viðhald til að halda í við breytilegar skattareglur og aðrir eru bara einfaldlega með svo há verð að kerfin eru ókaupanleg.

Ekki láta plata þig í kerfi þar sem árslaunin þín verða hundruðum þúsunda lægri en þú býst við vegna óvæntra og hárra reikninga frá seljanda þíns viðskiptahugbúnaðar. Ef þú þarft sérvinnu hjá okkur rukkum við 4.500 kr + VSK. Mundu að spyrja hvað það kostar hjá öðrum ! En almennt muntu ekki þurfa á slíku að halda enda hugbúnaðurinn okkar með langmest allt innifalið sem þú munt þurfa í þínum rekstri.

Verðin í töflunni hér að neðan eru þau verð sem þú þarft að greiða, það er ENGINN falinn kostnaður hjá okkur.

Öll verð eru með VSK.

Vörur Frítt kerfi * Fullur pakki Grunn+Laun Grunn+Vefverslun Grunnpakki
Sölureikningar / mánuði 3 1000 1000 1000 1000
Færsluskjöl / mánuði 15 1500 1200 1200 1200
Launamenn 1 100 100 1 1
Kerfisnotendur 30 100 100 100 100
Launakerfi Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið
Fjárhagur Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið
Sölukerfi Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið
Innkaupakerfi Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið
Birgðakerfi Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið
Vefverslun Innifalið Innifalið   Innifalið  
Rafræn skil RSK Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið
Verð
  • 0 kr M/VSK per 1 Mánuð
  • 7990 kr M/VSK per 1 Mánuð
  • 22871 kr M/VSK per 3 Mánuði
  • 43824 kr M/VSK per 6 Mánuði
  • 80800 kr M/VSK per 12 Mánuði
  • 6700 kr M/VSK per 1 Mánuð
  • 19173 kr M/VSK per 3 Mánuði
  • 35607 kr M/VSK per 6 Mánuði
  • 68475 kr M/VSK per 12 Mánuði
  • 6700 kr M/VSK per 1 Mánuð
  • 19173 kr M/VSK per 3 Mánuði
  • 35607 kr M/VSK per 6 Mánuði
  • 68475 kr M/VSK per 12 Mánuði
  • 5390 kr M/VSK per 1 Mánuð
  • 15338 kr M/VSK per 3 Mánuði
  • 28759 kr M/VSK per 6 Mánuði
  • 54780 kr M/VSK per 12 Mánuði

* Frítt kerfi er framlag Notando til nýstofnaðra fyrirtækja sem vilja hafa sitt á hreinu. Það er ALVEG frítt að nota Notando fyrir þá sem uppfylla skilyrði um notkun. Eina sem þú þarft að gera er að velja mánaðarlega fría áskrift. Ef þú ferð yfir lágmarksnotkun þarftu hinsvegar að velja áskriftarleið og getur ekki aftur valið fría notkun.